Yfir 5000 E-töflur í farangri
Yfir 5000 E-töflur fyndust í farangri íslensks karlmanns á fertugsaldri sl. mánudag, en hann var að koma til landsins frá London.Tollgæslan handtók manninn og flutti hann til nánari yfirheyrslu og rannsóknar hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík. Maðurinn var í framhaldinu úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald þar sem rannsókn málsins er ekki lokið. Maðurinn hefur ekki komið við sögu lögreglu áður.