Yfir 400 manns hafa séð sýningu Errós
Yfir 400 manns hafa séð sýningu á verkum Erró í Listasafni Reykjanesbæjar, sem opnuð var í DUUS-húsum sl. föstudag. Það var Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur, sem opnaði sýninguna. Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar, lýsti ánægju sinni með það að fá svona stóra sýningu á safnið, en undanfarið ár hefur farið í að markaðssetja safnið og þessi sýning er liður í því.
Sýningin ber heitið; Erró – Fólk og frásagnir og kemur frá Listasafni Reykjavíkur. Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir er sýningarstjóri.
Í sýningarskrá sem gefin er út af tilefni sýningarinnar segir m.a.: “Á þessari sýningu er viðfangsefnið mannlegt eðli í öllum sínum margbreytileika og er efniviðurinn að stærstum hluta sóttur í heim myndasagna. Frásagnarmátinn í þessum myndum er ýmist á þann hátt að Erró steypir saman í eitt rými ólíkum myndbrotum héðan og þaðan og býr til nýjar tilvísanir eða frásagnir eða hann notar einskonar net þar sem myndbrotum er raðað inn í og skapar á þann hátt framvindu eða hreyfingu í frásögnina.”
Sýningin er opin alla daga frá kl. 13.00 – 17.30 og stendur til 29.ágúst.
Ljósmyndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Eiríkur Þorláksson frá Listasafni Reykjavíkur og Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar við opnun sýningarinnar á föstudag.