Yfir 1600 skjálftar staðsettir við Grindavík
Dregið hefur úr skjálftavirkni í grennd við Grindavík undanfarna daga. Enn mælast þó smáskjálftar á svæðinu. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram með virkni á svæðinu. Frá 21. janúar hafa yfir 1600 skjálftar verið staðsettir á svæðinu og eru þeir flestir staðsettir í SV/NA stefnu um 2 km NA af Grindavík.
Vísbendingar eru um breytt mynstur í jarðskorpuhreyfingum, en enn má sjá merki um áframhaldandi landris. Í heildina hefur land risið yfir 5 cm frá 20. janúar. Með landrisi má áfram búast við jarðskjálftavirkni.
Líklegasta skýring á þessari virkni er kvikuinnskot á 3-5 km dýpi rétt vestan við Þorbjörn. Líklegast er að virkninni ljúki án eldsumbrota. Næsti fundur vísindaráðs Almannavarna verður haldinn fimmtudaginn 13. febrúar.