Miðvikudagur 22. desember 2021 kl. 10:23
Yfir 1400 skjálftar við Geldingadali - Sá stærsti 4,9
Um kl. 17 í gær hófst hrina jarðskjálfta við Geldingadali. Alls hafa yfir 1400 skjálftar mælst enn sem komið er. Stærsti skjálftinn var 4,9 að stærð kl. 09:23 og fannst hann vel á SV-horninu. Aðrir skjálftar voru 4,2 að stærð kl. 04:24 og kl. 09:13 varð skjálfti 4,1 að stærð.