Yfir 1300 gestir daglega í Garðskagavita í ágúst
Um 65 þúsund manns heimsóttu Garðskagavita og Reykjanesvita í ágúst síðastliðnum samkvæmt talningum Gyðu Þórhallsdóttur, doktorsnema við Háskóla Íslands, fyrir Stjórnstöð ferðamála. Samkvæmt talningunni heimsóttu 43 þúsund manns Garðskagavita í ágúst síðastliðnum sem eru að meðaltali 1390 á dag. Um 22 þúsund gestir heimsóttu Reykjanesvita í ágúst eða 710 á dag, að meðaltali. Frá talningunni er greint á vefnum reykjanes.is. Talning ferðamanna á þessum stöðum hófst í ár en hún fer fram á 70 stöðum um land allt.
Reykjanesskaginn er í dag svokallaður Geopark eða jarðvangur og er hluti af verndaráætlun UNESCO eða UNESCO Global Geopark. Reykjanes fékk formlega vottun sem Geopark á þrettándu haustráðstefnu European Geoparks Network í Rokua Geopark í Finnlandi í september 2015. Reykjanes Geopark er annað svæðið á Íslandi til að hljóta þessa vottun en Katla Geopark hlaut hana árið 2011. Reykjanes Geopark er jafnframt 66. svæðið í Evrópu sem hlýtur vottunina.
Töluverðar framkvæmdir eru framundan á Reykjanesi til að mæta auknum fjölda ferðamanna, unnið er að bílastæði við Reykjanesvita og Brimketil auk palla við síðarnefnda staðinn og lagfæring vegstæðis að Gunnuhver. Þá verða kynntar hugmyndir um þjónustuhús við Reykjanesvita á næstu vikum. Sú framkvæmd og reksturinn þar verður í höndum einkaaðila.
Framkvæmdirnar eru fjármagnaðar með styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, frá HS Orku og Bláa Lóninu. Auk þess leggur framkvæmdasjóður Reykjanes Geopark til mótframlag en í hann greiða allir aðilar að jarðvanginum.