Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

WOW air fyrsta flugfélag Evrópu sem flýgur Airbus A321neo
Gael Meheust forseti og forstjóri CFM international, John Leahy framkvæmdastjóri Airbus Commercial aircraft, Skúli Mogensen forstjóri og eigandi WOW air og Steven F. Udvar-Házy stjórnarformaður Air Lease Corporation.
Miðvikudagur 21. júní 2017 kl. 10:53

WOW air fyrsta flugfélag Evrópu sem flýgur Airbus A321neo

„Þetta er veruleg viðbót við flotann og gerir okkur kleift að fljúga vegalengdir upp á meira en sex þúsund kílómetra,“ segir Skúli Mogensen, eigandi og forstjóri WOW air, en flugfélagið verður það fyrsta í Evrópu til þess að fljúga Airbus A321neo. Samningur þess efnis var undirritaður í dag á flugsýningu í París.

„A321neo mun gera WOW air mögulegt að stækka leiðarkerfi sitt í Evrópu og Norður-Ameríku með vél sem er ein sú þægilegasta og hagkvæmasta í rekstri á markaðnum í dag,“ segir John Leahy, forstjóri Airbus.

„Þessi fyrsta afhending á A321neo í Evrópu sýnir glöggt hversu sterkt og gjöfult samstarf okkar við WOW air er. Við erum einstaklega ánægð að vera tengd þeirra uppgangi á heimsvísu. Á skömmum tíma hefur WOW air náð að verða flugfélag sem nýtir sér óhikað tækninýjungar með góðum árangri. Þessi nýja flugvél mun tryggja áframhaldandi vöxt flugfélagsins þar sem hún drífur lengra á sama tíma og hún heldur eldsneytiskostnaði í lágmarki,“ segir Steven F. Udvar-Hazy stjórnarformaður Air Lease Corporation.

Nýja vélin mun hljóta nafnið TF-SKY og fer í áætlunarflug í byrjun júlí og mun meðal annars fljúga til staða á borð við Tel Aviv í september. Vélin er sautjánda vél WOW air og í henni eru 218 sæti. Í lok árs 2018 verða vélar WOW air orðnar 24 talsins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024