Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Wizz Air flýgur frá Keflavíkurflugvelli til Budapest
Fimmtudagur 31. mars 2016 kl. 11:42

Wizz Air flýgur frá Keflavíkurflugvelli til Budapest

Ungverska flugfélagið Wizz Air hefur hafið flug á milli Keflavíkurflugvallar og Budapest í Ungverjalandi. Budapest er annar áfangastaður Wizz Air frá Íslandi en félagið flýgur einnig til Gdansk í Póllandi. Í maí á þessu ári bætir félagið þriðja áfangastaðnum við, Varsjá í Póllandi. Flogið verður tvisvar í viku til Budapest, á miðvikudögum og sunnudögum, allt árið um kring. Haldið var upp á hina nýju flugleið á Keflavíkurflugvelli í gær og bauð Isavia farþegum upp á léttar veitingar í tilefni dagsins.

Wizz Air er sem áður segir ungverskt flugfélag og stærsta lággjaldaflugvélagið í Mið- og Austur-Evrópu. Félagið hóf flug á milli Gdansk og Keflavíkurflugvallar í júní í fyrra, fyrst tvisvar í viku en fjölgaði ferðum fljótlega upp í þrjár. Nú bætist annar áfangastaðurinn við og sá þriðji, Varsjá, í maí. Það er því ljóst að félagið bindur miklar vonir við Ísland sem áfangastað.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024