Wilson til útlanda
Líkur eru á að Wilson Muuga verði seldur úr landi og lagfærður. Þetta kom fram hjá Guðmundi Ásgeirssyni í hádegisfréttum Stöðvar 2.
Engin aðstaða er til að standsetja skipið hér á landi og telur Guðmundur líklegt að ef kaupandi finnst muni Wilson verða dreginn inn að botni Miðjarðarhafs jafnvel inn í Svartahaf þar sem hægt er að fá ódýrar viðgerðir á stáli.
H: www.visir.is
VF-mynd/elg