Wilson Muuga dreginn á flot um miðjan maí
Stefnt er að því að samningar um björgun Wilsons Muuga af strandstað við Hvalsnes verði undirritaðir í fyrramálið. Áætlun liggur fyrir um að draga flutningaskipið á flot á stórstraumsflóði þann 18. maí næstkomandi. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Skipið hefur setið fast við Hvalsnes í nærri eitthundað daga. Viðræður hafa staðið yfir milli eigenda og stjórnvalda undanfarnar vikur og sér nú loks fyrir endann á þeim. Fulltrúi útgerðar skipsins, Guðmundur Ásgeirsson, mætti ásamt fulltrúum Umhverfisstofnunar til fundar í Umhverfisráðuneytið nú síðdegis til að ganga frá samkomulagi þessara aðila en samkvæmt heimildum Stöðvar tvö er stefnt að því að það verði undirritað í fyrramálið. Undirbúningur á strandstað er kominn á fulla ferð og strax eftir páska verður byrjað að þétta göt sem komu á skrokk skipsins.
Þann 18. Maí er stórstraumsflóð og verður þess þá freistað að draga skipið á flot.
www.visir.is
VF-mynd: elg