Vsk á ferðaþjónustu hitaefni á árlegum fróðleiksfundi KPMG
„Fundarmenn voru aðilar úr atvinnulífinu, aðallega ferðaþjónustunni, starfsmenn bókhaldsstofa á svæðinu og starfsfólk sveitarfélaganna á svæðinu. Aðallega var spurt út í reglur sem gilda um aðila sem vinna erlendis hluta árs eða allt árið. Einnig var mikið spurt út í breytingar á virðisaukaskattslögum sem taka gildi í ársbyrjun 2016 og snúa að aðilum í ferðaþjónustu – talsverðar umræður fóru fram um þetta mál,“ segir Lilja Dögg Karlsdóttir, endurskoðandi og í forsvari fyrir KPMG í Reykjanesbæ.
KPMG ehf. hefur undanfarin ár fylgt skattabæklingi sínum úr hlaði með því að halda fróðleiksfundi á þeim stöðum sem félagið er með skrifstofur. Nýverið var haldinn fróðleiksfundur á starfsstöð KPMG ehf. í Reykjanesbæ, en það er í fjórða sinn sem slíkur fundur er haldinn þar. Fyrirlesarar voru þær Guðrún Björg Bragadóttir og Sigrún Rósa Björnsdóttir, starfsmenn skatta- og lögfræðisviðs KPMG. Góð mæting var á fundinum og voru fundarmenn um 40 talsins.
Á fundinum var fjallað um þær viðamiklu breytingar sem voru gerðar á virðisaukaskattslöggjöfinni á síðasta ári. Skipta má breytingunum í tvennt. Annars vegar var skatthlutföllum í virðisaukaskatti breytt, þar sem að efra skatthlutfallið var lækkað úr 25,5% í 24% en það neðra hækkað úr 7% í 11%. Hins vegar hafa aðrar breytingar sem gerðar voru á virðisaukaskattslögunum ekki verið eins mikið í umræðunni og mætti ætla þegar horft er til þeirra áhrifa sem að þær munu hafa. Er þar vísað til þess að frá áramótum 2016 verður ákveðin tegund fólksflutninga, þ.e. fólksflutningar í afþreyingarskyni virðisaukaskattsskyldir. Almenningssamgöngur eftir fyrirfram birtri áætlun verða þó áfram undanþegnar virðisaukaskatti.
Þá var fjallað um helstu breytingar sem urðu á tekjuskattslöggjöfinni svo sem lækkun tryggingagjalds úr 7,59% í 7,49%, breytingu á fjárhæðamörkum tekjuskattsstofns einstaklinga og hækkun persónuafsláttar.
Þessu til viðbótar var farið inn á atriði sem einstaklingar sem vinna erlendis, annað hvort allt árið eða hluta úr ári þurfa að hafa í huga við frágang á sínu skattframtali hérlendis.