HSS
HSS

Fréttir

VSFK krefur stjórnvöld um afdráttarlausan stuðning við álver í Helguvík
Fimmtudagur 21. febrúar 2008 kl. 17:23

VSFK krefur stjórnvöld um afdráttarlausan stuðning við álver í Helguvík

Stjórn VSFK hefur sent forsætisráðherra formlegt erindi þar sem skorað er á íslensk stjórnvöld að veita álveri í Helguvík tafarlausan og afdráttarlausan stuðning.

Í bréfi VSFK segir að atvinnuleysi fari vaxandi á Suðurnesjum. Í kreppunni á 10. áratugnum, sem valdið hafi fólksflótta héðan, hafi sjávarútvegurinn gefið eftir.  Nú sé óhjákvæmilegt að sjávarútvegurinn gefi eftir að nýju í kjölfar kvótaskerðingar.

„Það er öllum ljóst að brotthvarf Varnarliðsins hefur skapað verulegan vanda á Suðurnesjum. Margt fólk sem missti atvinnuna þá, gekk í illa launuð bráðabirgðastörf og á nú í vandræðum með fjárhagslegar skuldbindingar. Til að bæta gráu ofan á svart berast daglega fréttir af mjög sveiflukenndu ástandi  á fjármálamörkuðum með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir íslenskt atvinnulíf.

Samfélagið hér kallar eftir öflugum fyrirtækjum sem skapa varanleg störf og greiða mannsæmandi laun. Burðarstoðum í atvinnulífi sem pakka ekki saman og láta sig hverfa þegar í móti blæs.

Eitt af stóru tækifærunum í augsýn er að álver Norðuráls rísi sem fyrst í Helguvík.  Það er sú burðarstoð sem við þurfum á að halda til að skapa nýjan stöðugleika og efla önnur framleiðslu- og þjónustufyrirtæki. Þetta er það tækifæri sem verður að grípa strax til að skapa áþreifanlegt mótvægi við yfirvofandi kreppu.

Við skorum á íslensk stjórnvöld að veita álveri í Helguvík tafarlausan og afdráttarlausan stuðning. Íbúar á Suðurnesjum þurfa ekki á skýjaborgum að halda, heldur alvöru stjórnmálamönnum og alvöru atvinnutækifærum.“ segir í áskoruninni.

VSFK hefur jafnframt sent sveitarstjórnum á Suðurnesjum svipaða áskorun.
Bílakjarninn
Bílakjarninn