Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

VSFK í samstarf við Ráðgjafastofu
Miðvikudagur 18. maí 2005 kl. 17:51

VSFK í samstarf við Ráðgjafastofu

Verkalýðs og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna undirrituðu í gær 17. maí þjónustusamning.

Samkvæmt samningnum munu ráðgjafar frá Ráðgjafarstofunni fara árið 2005 á fyrirfram ákveðnum dögum til Keflavíkur og veita ráðgjöf.  Þjónustan er ókeypis og mun VSFK sjá um að taka niður tímapantanir fyrir ráðgjafa sem mun verða til viðtals í Reykjanesbæ á fyrirfram ákveðnum dögum og veita ráðgjöf á skrifstofu VSFK í Keflavík.

Í tilkynningu frá VSFK segir að Suðurnesjamenn geti nálgast umsóknir og upplýsingar um stofuna á skrifstofu félagsins að Hafnargötu 80 Keflavík. Bókanir eru hafnar í síma  421-5777  í fyrsta viðtalstíma hjá ráðgjafa sem verður miðvikudaginn 8. júní n.k. Einnig munu starfsmenn Ráðgjafarstofu veita fræðslu til starfsmanna VSFK og annarra eftir nánara samkomulagi.  Meginmarkmið samningsins er að veita Suðurnesjamönnum sem eiga í verulegum greiðsluerfiðleikum aukna endurgjaldslausa þjónustu.
 
Hlutverk Ráðgjafarstofu er eftirfarandi:
• Að veita einstaklingum og fjölskyldum í verulegum greiðsluerfiðleikum og eru komin í þrot með fjármál sín aðstoð við að öðlast heildarsýn yfir fjármál sín og leita leiða til lausnar.
• Að greina ástæður greiðsluvanda einstaklinga og gera tillögur til úrbóta.
• Að stuðla að samstarfi þeirra sem vinna að málefnum þeirra sem eiga í greiðsluerfiðleikum.
• Að veita umsækjendum hjálp til sjálfshjálpar.
• Að vinna að fræðslustarfi fyrir almenning um fjármál heimilanna í því augnamiði að draga úr hættu á greiðsluerfiðleikum.

Er um að ræða upphaf samstarfs til að auka þjónustu við þá sem eiga lögheimili á Suðurnesjum og eiga í greiðsluerfiðleikum. Standa vonir til að þetta verði Suðurnesjamönnum til heilla.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024