VS samþykkir sameiningu við VR
	Félagsmenn Verslunarmannafélags Suðurnesja samþykktu sameiningu við VR í rafrænni atkvæðagreiðslu sem lauk á hádegi miðvikudaginn 13. mars. Þetta kemur fram á vef félagsins.
	Á kjörskrá voru 1.213 og alls greiddu 315 atkvæði eða 25,97%.
	Já sögðu 260 eða 82,54%, nei sögðu 54 eða 17,14% og 1 skilaði auðu.
	VR mun taka fyrir tillögu um sameiningu á aðalfundi VR þann 27. mars nk. og mun sameining taka gildi 1. apríl nk.
				
	
				
 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				