Votviðri í kortunum

Hægviðri og skýjað en úrkomulítið. Suðaustan 5-10 m/s og súld upp úr hádegi. Suðlæg átt, 8-13 og rigning eða súld seint í kvöld og á morgun. Hiti 0 til 5 stig, en 5 til 9 stig í kvöld og á morgun.
Spá gerð: 14.11.2007 06:42. Gildir til: 15.11.2007 18:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Sunnan og síðar vestan 8-13 m/s. Rigning í fyrstu, einkum S-lands og hiti 5 til 8 stig. Skúrir eða él síðdegis og kólnandi veður.
Á laugardag:
Hvöss norðan- og norðvestanátt. Snjókoma eða él fyrir norðan, en þurrt sunnantil á landinu. Frost 0 til 7 stig.
Á sunnudag:
Vestlæg átt, léttskýjað á austanverðu landinu, annars skýjað en úrkomulítið. Hlánar vestantil á landinu og dregur úr frosti annars staðar.
Á mánudag og þriðjudag:
Suðvestanátt og milt veður. Súld eða rigning með köflum, en þurrt A-lands.
Spá gerð: 14.11.2007 08:11. Gildir til: 21.11.2007 12:00.