Fimmtudagur 18. júlí 2002 kl. 15:48
Vörurnar ruku út á „reykútsölu“

Brjálað hefur verið að gera í versluninni Börn og útivist í dag en þar var rýmingarútsala vegna brunans í Gallerý-förðun og tókst að selja næstum allt í versluninni. Ástæðan fyrir því að ákveðið var að selja allt á afslætti var að mikil reykjarlykt var af vörunum og því þótti þetta besta lausnin á vandanum. 60% afsláttur var gefinn af öllum fatnaði og grillvörum og 30% afsláttur af rúmum og barnavögnum.
Sirrý Þorsteinsdóttir eigandi verslunarinnar var að vonum sátt við viðbrögð fólks við útsölunni en hún ákvað að taka einu peysuna sem eftir var og eiga hana sjálf.