HSS
HSS

Fréttir

Vörugeymsla byggð á Keflavíkurflugvelli
Mánudagur 28. júní 2004 kl. 17:34

Vörugeymsla byggð á Keflavíkurflugvelli

Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. hefur undirritað samning við Sparra ehf. um byggingu vörugeymslu fyrir Fríhafnarverslun félagsins. Um er að ræða stálgrindarbyggingu sem verður um 1.450 fermetrar að grunnfleti og verður hún staðsett á flugþjónustusvæði við flugskýli Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Nýja vörugeymslan verður því innan frísvæðis sem auðveldar alla vörumeðhöndlun, en frá þessu er greint á vef viðskiptablaðsins.

Framkvæmdir eru þegar hafnar og eru áætluð verklok 1. janúar 2005.
Bílakjarninn
Bílakjarninn