Vörubílstjóri tekin á of miklum hraða
Vörubílstjóri var tekinn á stórum vöruflutningabíl á of miklum hraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi. Vörubíllinn var stöðvaður á 107 km. hraða þar sem hámarkshraði er 80 km. fyrir ökutæki af þessari stærðargráðu.Lögreglan var með hraðamælingar á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi og voru þrír ökumenn sektaðir fyrir of hraðan akstur í gærkvöldi og í nótt.