Vortónleikar Kórs Keflavíkurkirkju
-syngur lög af efni Ítalíusöngferðar
Kór Keflavíkurkirkju heldur vortónleika í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju nk. fimmtudag 19. maí kl. 20:00 þar sem flutt verða lög af efnisskrá sem kórinn mun flytja í tónleikaferð til Ítalíu í júní.
Aðgangseyrir er einungis kr. 1000 og rennur í ferðasjóð kórsins. Boðið verður upp á kaffi og kruðerí á staðnum og notalega stemmningu.