Mánudagur 3. apríl 2000 kl. 23:27
Vorið komið í Bláa lónið

Hundruð gesta sækja Bláa lónið heim daglega og um helgar fara gestirnir oft vel yfir 1000.Vorið er svo sannarlega komið í Bláa lónið og um síðustu helgi komu samtals um 3000 manns í lónið. Blíðviðrið sem ríkti um síðustu helgi á þar stóran þátt, en lónið er einnig vel kynnt og rómað fyrir góða aðstöðu og vart til betri afslöppun en að skella sér í lónið eftir erfiðan vinnudag eða á helgarrúnti með fjölskylduna. Meðfylgjandi myndir voru teknar í lóninu í gærdag.