Vorið komið?
Suðaustan 10-18 og rigning fram eftir morgni við Faxaflóa, síðan sunnan 8-13 og skúrir. Hiti 2 til 7 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Suðvestlæg átt 5-13 m/s og skýjað, en víða léttskýjað um austanvert landið. Bætir heldur í vind NV-til um kvöldið. Hiti 2 til 8 stig.
Á fimmtudag:
Sunnan og suðvestan 5-13 m/s og léttskýjað NA- og A-lands, annars skýjað en úrkomulítið. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast NA-til.
Á föstudag:
Suðvestan 5-10 m/s og rigning S- og V-lands, annars þurrt. Hiti yfirleitt 5 til 10 stig. Bætir í vind síðdegis og kólnar V-til.
Á laugardag:
Suðvestanátt og él, en léttskýjað A-lands. Hiti um frostmark.
Á sunnudag:
Vestlæg eða breytileg átt og þurrt og bjart veður, en skýjað allra vestast. Hlýnandi veður.