Vorboðinn ljúfi...
... er í þessu tilfelli þegar hurðir geymsluhúsa fyrir tjaldvagna og fellihýsi eru opnaðar upp á gátt og fólk getur sótt þennan sumarferðabúnað sinn. Fyrsta helgin í maí er oftar en ekki sá tími sem geymslurnar eru opnaðar. Björgunarsveitin Ægir í Garði er með myndarlegt geymsluhúsnæði í Garði en vetrargeymslur sveitarinnar eru helsta fjáröflun björgunarsveitarinnar. Í gær átti fólk að sækja sinn búnað en sveitin geymir allt frá minnstu tjaldvögnum til stærstu húsbíla og hjólhýsa.
Þegar fólk sótti sinn búnað í gær var því boðið að tryggja sér pláss í geymslunni aftur næsta haust. Er skemmst frá því að segja að allt geymslupláss hjá Björgunarsveitinni Ægi í Garði er uppselt fyrir næsta vetur.
Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Báraðarson