Vorboðar - Gráir fyir járnum
Íbúar Reykjanesbæjar hafa margir hverjir heyrt kunnugleg hljóð úr Miðnesheiðinni í dag. Hefur mátt sjá herþotur bæði lenda og taka á loft. Þetta var algeng og dagleg sjón fyrir fáeinum misserum, en nú er horft til himins þegar þotuhljóðin heyrast.
Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar, sagði að þoturnar teljist nú til vorboða. Þær séu á leiðinni milli Evrópu og Ameríku og hafi viðkomu hér á landi m.a. til að taka eldsneyti.
Mynd: Herkules flutningavél á Keflavíkurflugvelli fyrir fáeinum dögum. Mikil umferð hervéla hefur verið um Keflavík síðustu daga. Vorboðar, segir upplýsingafulltrúi flugvallarins.