Fimmtudagur 31. janúar 2002 kl. 09:40
Vopnabúr hjá tollgæslunni

Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur síðustu 20 mánuði lagt hald á 720 ólögleg vopn af ýmsu tagi í vörslu farþega við komu til Íslands. Tilraunir til vopnainnflutnings hafa aukist mikið og langflest hættulegustu vopnin sem tollgæslan leggur hald á tengist meintum fíkniefnasmyglurum. Algengustu vopnin sem hald er lagt á hjá tollgæslunni eru loftbyssur og eru þær sumar hverjar mjög öflugar en rúmlega 200 hnífar og 200 loftbyssur hafa verið gerðar upptækar í hefðbundnu tollaeftirliti á þessu tímabili. Auk þessa hefur tollgæslan lagt hald á mikinn fjölda sverða, handjárna, fótjárna, hnúajárna svo og kaststjarna og gaddakilfa. Varningurinn hefur aðallega verið í fórum fólks á aldrinum 14 til 20 ára þótt aðrir aldurshópar hafi einnig komið við sögu. Langflest af þessum vopnum kemur frá Spáni þar sem auðvelt virðist vera að versla sér þennan varning.
Mestur fjöldi brotanna varðar þó ungmenni sem venjulega gera sér ekki grein fyrir því að þessi vopn eru bönnuð og því mikilvægt að brýna fyrir foreldrum að fylgjast með því hvort börn þeirra eru með slíkt undir höndum því slysahættan af þessum vopnum er mikil.