Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Vonbrigði - segir forstjóri Norðuráls um Helguvík
Fimmtudagur 1. desember 2016 kl. 14:39

Vonbrigði - segir forstjóri Norðuráls um Helguvík

„Við erum enn að fara yfir úrskurð gerðardómsins en hann veldur  okkur vissulega vonbrigðum. Við munum nú fara ítarlega yfir forsendur úrskurðarins og meta út frá því hvaða  möguleikar eru fyrir hendi. Þá munum við kanna hvort mögulegt sé að afla orku til verkefnisins í Helguvík eftir öðrum leiðum,“ segir Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðurál eftir úrskurð alþjóðlegs gerðardóms í morgun.

Þar höfðaði HS Orka gegn Norðuráli Helguvík árið 2014. Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu, öfugt við úrskurð gerðardóms frá árinu 2011, að HS Orku beri ekki að standa við ákvæði raforkusamnings sem fyrirtækið undirritaði við Norðurál Helguvík í apríl 2007 vegna álvers í Helguvík.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024