Bygg
Bygg

Fréttir

Von á úrkomu
Mánudagur 12. september 2005 kl. 08:52

Von á úrkomu

Klukkan 6 var austlæg átt, víða 3-8 m/s, en hvassari við suðurströndina og hvassast 23 m/s á Stórhöfða. Skýjað með köflum, en rigning eða súld á Suður- og Suðausturlandi. Hiti var frá 10 stigum á Garðskagavita niður í vægt frost allvíða fyrir norðan.

Yfirlit:
Yfir Grænlandi er 1022 mb hæð og 1017 mb hæðarhryggur er skammt NA af landinu. Um 800 km SV af Reykjanesi er víðáttumikil 967 mb lægð á NA-leið.

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Vaxandi austan og norðaustanátt, 13-18 m/s og dálítil ringing kringum hádegi. Úrkomulítið í nótt. Hiti 5 til 12 stig.

Kortið er fengið af vef Veðurstofunnar

Bílakjarninn
Bílakjarninn