VON Á HÖRÐUM SLAG UM LAUSAR LÓÐIR Í VOGUNUM?
Hreppsnefnd Vatnsleysustrandarhrepps frestaði afgreiðslu umsóknar YL-húsa ehf. um 20 lóðir í Vogunum þrátt fyrir að sveitarstjóri hefði áður sagt forráðamönnum fyrirtækisins að lóðarumsóknum eftir tilbúnum lóðum yrði ekki hafnað. Ágúst Bjarnason, einn tveggja eigenda YL-húsa sagði svör hreppsnefndar vonbrigði. „Við höfðum rætt við sveitarstjóra áður en við sóttum um lóðirnar og hún þá sagt að lóðarumsóknum varðandi tilbúnar lóðir yrði ekki hafnið en nú virðist sem annað sé að koma á daginn.“ Jóhanna Reynisdóttir, sveitarstjóri, sagði hreppinn ekki hafa hafnað umsóknunum aðeins slegið á frest ákvörðunum þangað til eftir kynningarfund nk. þriðjudag. „Eins og segir í bókun hreppsnefndar þá telur hreppsnefnd ekki skynsamlegt að úthluta nær öllum lóðum í Vogum á einu bretti, rétt fyrir kynningarfundinn sem haldinn verður m.a. með verktökum. Forsvarsmaður YL-húsa hlýtur að gera sér grein fyrir því að úthlutun lóða er ákvörðun hreppsnefndar en ekki sveitarstjóra. Aftur á móti tjáði ég honum að allar íbúðalóðarumsóknir hafa hingað til verið samþykktar og jafnframt vil ég árétta að umsókn YL-húsa hefur ekki verið hafnað, einungis frestað á ofangreindum forsendum.“