Vogastrætó í stöðugri sókn
Það sem af er árinu hefur Vogastrætó flutt rúmlega 1.200 farþega. Það er 87% aukning frá síðasta ári á sama tíma, en fjöldi farþega var þá liðlega 600. Þetta sýnir svo ekki er um villst að þjónusta Vogastrætó er vel metin af íbúum sveitarfélagsins.
Ferðirnar eru samhæfðar við áætlunarferðir milli Reykjavíkur og Reykjanesbæjar. Sveitarfélagið greiðir niður fargjöld til höfuðborgar–svæðisins, farmiðakortin eru til sölu á bæjarskrifstofunni og í íþróttamiðstöðinni. Frítt er í ferðir til Reykjanesbæjar, Sandgerðis, Garðs og Grindavíkur.