Vogar: Uppgreiðsla skulda fyrirhuguð á næsta ári
Bæjarstjórn Voga hefur samþykkt að hækka útsvarsprósentu úr 13,03% í 13,28%, en jafnframt að lækka fasteignaskatt á íbúðarhúsnæði úr 0,28% af fasteignamati í 0,265%. Jafnframt er vatnsgjald lækkað úr 0,19% í 0,15% og fráveitugjald hækkað úr 0,17% í 0,19% af fasteignamati. Almennt hækka gjaldskrár um 5% milli ára.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Voga 2010 var lögð fram til fyrri umræðu þann 26. nóvember og seinni umræðu 17. desember. Haldinn var opinn íbúafundur um fjárhagsáætlunina og ráðstafanir í tengslum við hana þann 15. desember.
Áætlað er að skattstofnar standi nánast í stað frá árinu 2009. Gert er ráð fyrir að launakostnaður lækki um 9% milli ára og annar rekstrarkostnaður lækki um 13%. Munar þar töluvert um lækkun á leigugreiðslum til Eignarhaldsfélagsins Fasteignar. Gert er ráð fyrir hagræðingu í nánast öllum þáttum öðrum en félagsþjónustu og kennslu. Mest er hagræðingin á sviði íþrótta-og tómstundamála.
Helstu þættir eru eftirfarandi í þús. kr.
Áætlun
Tekjur:
Skatttekjur................................... 337.801
Framlög jöfnunarsjóðs................ 141.000
Aðrar tekjur................................. 119.623
Alls 598.424
Gjöld:
Laun og launatengd gjöld........ 313.812
Annar rekstrarkostnaður.......... 306.221
Afskriftir................................... 28.276
Alls 648.309
Niðurstaða án fjármagnsliða (49.885)
Fjármagnsliðir 63.374
Rekstrarniðurstaða 13.489
Veltufé frá rekstri er áætlað 68.597
Gert er ráð fyrir fjárfestingum fyrir um 98 milljónir í nýjum útrásum fráveitu, íþróttasvæði og í opin svæði, leiksvæði leikskóla og endurgerð gatna. Þau verkefni munu skapa störf á uppbyggingartíma, en ekki auka rekstrarkostnað sveitarfélagsins að ráði, segir í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum.
Samhliða umræðu um fjárhagsáætlun hefur verið rædd tillaga um að hluti höfuðstóls Framfarasjóðs Sveitarfélagsins Voga verði nýttur til uppgreiðslu lána og hluta skuldbindinga í fasteignaleigusamningum. Fyrri umræða um þá tillögu, ásamt áliti sérfróðs aðila, fór fram þann 17. desember en önnur umræða verður í janúar. Gangi áformin eftir verður sveitarfélagið skuldlaust, en mun áfram eiga hundruði milljóna í Framfarasjóðnum, segir jafnframt í tilkynningunni.
Sjá nánar á vef sveitarfélagsins Voga hér.
---
Ljósmynd/Oddgeir Karlsson.