Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Vogar: Umhverfisnefnd hafnar öllum valkostum Landsnets
Fimmtudagur 1. nóvember 2007 kl. 13:58

Vogar: Umhverfisnefnd hafnar öllum valkostum Landsnets

Umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Voga leggur til að öllum fyrirliggjandi valkostum Landsnets um lotflínur í landi sveitarfélagsins verði hafnað. Bæjarstjórn hafði áður vísað til nefndarinnar erindi Landsnets um háspennulínur í landi Voga. Í umsögn umhverfisnefndar segir að svo miklar raflínur muni til frambúðar spilla ásýnd landsins og hefta möguleika til atvinnusköpunar, útivistar og annarrar landnýtingar.

„Að vel athuguðu máli leggur umhverfisnefnd til að öllum fyrirliggjandi valkostum Landsnets um loftlínur verði hafnað með framtíðarhagsmuni íbúa Sveitarfélagsins Voga og náttúruvernd í huga. Nefndin álítur að svo miklar raflínur muni spilla ásýnd lands okkar og hefta möguleika til atvinnusköpunar, útivistar og annarrar landnýtingar til frambúðar. Ekki verður heldur séð að þörf sé fyrir svo stór, og afkastamikil mannvirki jafnvel þó virkjanir stækki og jafnvel þó 250.000 tonna álver yrði byggt í Helguvík," segir í umsögn nefndarinnar.

Og ennfremur segir:  „Til að styrkja raforkudreifingarkerfið á Suðurnesjum mælir nefndin með jarðstreng sem lagður verði þétt meðfram Reykjanesbraut og að núverandi lína fái að halda sér. Sú lausn þarf ekki að verða mikið dýrari en loftlínur ef umhverfiskostnaður er tekinn með í dæmið.
Verði byggður upp verulega orkufrekur iðnaður á Helguvíkursvæðinu vill nefndin að skoðaður verði sá kostur að leggja sæstreng milli Flekkuvíkur og  Helguvíkur.  Samkvæmt nýlegum rannsóknum eru áhrif sæstrengs á botndýralíf lítil.  Þannig yrði sjónmengun heldur engin og leiðin að auki styttri en landleiðin."

Mynd: Horft Keilis og Voga.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024