Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Vogar fá styrk til að byggja þjónustumiðstöð
Föstudagur 26. janúar 2007 kl. 15:24

Vogar fá styrk til að byggja þjónustumiðstöð

Sveitarfélagið Vogar fékk í vikunni styrk að upphæð 31,2 milljónir króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra vegna framkvæmda við þjónustumiðstöð aldraðra í Akurgerði.

Heildarkostnaður við bygginguna er áætlaður um 156 milljónir og er áætlað að miðstöðin verði tekin í notkun með haustinu, en hún er í tengslum við íbúðir Búmanna við Akurgerði og Vogagerði.

Á heimasíðu bæjarins segir að byggingin muni gjörbylta aðstöðu fyrir tómstundaiðju eldri borgara í Sveitarfélaginu Vogum og verða miðdepill svokallaðs Stórheimilis í Vogum, þar sem þjónustumiðstöðin mun tengjast íbúðum fyrir eldri borgara.

 

Þar verða 13 íbúðir fyrir aldraða og þjónustumiðstöð sem hýsa mun alla öldrunarþjónustu og félagsstarf á einum stað. Íbúðirnar eru á bilinu 47 – 70 fermetrar og í það heila verður byggingin 2200 fermetrar og er verkefnið unnið í samstarfi við Búmenn, sem auk þessara 13 íbúða fyrir aldraða 67 ára og eldri, munu bjóða 6 parhúsaíbúðir samkvæmt hefðbundu Búmannakerfi.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra úthlutaði í ár alls 711,8 milljónum úr sjóðnum, en samkvæmt lögum um málefni aldraðra skal Framkvæmdasjóður aldraðra stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um land allt. Fjármagni skal varið til byggingar þjónustumiðstöðva og dagvista og byggingar stofnana fyrir aldraða. Einnig er hlutverk sjóðsins að mæta kostnaði við nauðsynlegar breytingar og endurbætur á húsnæði sem notað er til þjónustu fyrir aldraða og til viðhalds húsnæðis dagvistar- dvalar- og hjúkrunarheimila. Loks er heimilt að veita styrki úr sjóðnum til annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu. Framkvæmdasjóður aldraðra fær tekjur af sérstöku gjaldi sem lagt er á skattskylda einstaklinga samkvæmt lögum um tekjuskatt.


 

VF-myndir: 1: HBB- frá byggingu þjónustuíbúðanna. 2: elg - Frá fyrstu skóflustungunni að þjónustumiðstöðinni

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024