Vogabúar óhressir með heilbrigðisyfirvöld
Vel á þriðja hundrað íbúa í Vogum hafa ritað nafn sitt á undirskriftalista þar sem þess er krafist að Vogabúar fái læknisþjónustu með starfsaðstöðu í bæjarfélaginu. Afrit undirskriftalistans var lagt fyrir bæjarráð á fimmtudaginn. Bæjarráð tekur undir kröfu bréfritara að nauðsynlegt sé að tryggja íbúum í Vogum sambærilega þjónustu og tíðkast annarsstaðar.
Gætt hefur mikillar óánægju í Vogum með þá ákvörðun heilbrigðisyfirvalda að loka heilsugæsluseli í bæjarfélaginu. Bæjarráð gerði bókun nýlega þar sem niðurskurði á framlögum til sjúkraflutninga í ofanálag við lokun heilsugæslunnar var harðlega mótmælt. Þar var jafnframt kallað eftir því liðsinni sem þingmenn kjördæmisins eru sagðir hafa lofað á fundi í Vogum þann 29. október.