Bygg
Bygg

Fréttir

Vodkakúrinn í Frumleikhúsinu á Ljósanótt
Fimmtudagur 26. ágúst 2004 kl. 09:13

Vodkakúrinn í Frumleikhúsinu á Ljósanótt

Leikritið Vodkakúrinn, eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur, verður forsýnt í Keflavík á Ljósanótt.
Leikritið fjallar um Eyju sem er að þreifa sig áfram með megrunarkúra, auk þess sem hún á á basli með elskhuga sinn sem hefur meiri áhuga á Caterpillarnum sínum en henni.
Um er að ræða gamanleikrit með örlítið alvarlegum undirtóni, þar sem það er skoðun höfundar að megrunarkúrar virki ekki, og séu frekar til að fita fólk en hitt.
Hlutverk Eyju er leikið af Helgu Brögu Jónsdóttir og Steinn Ármann Magnússon leikur hin átta hlutverk sýningarinnar. Leikstjóri er Gunnar Ingi Gunnsteinsson, leikmynd og búningar eru í höndum Elínar Eddu Árnadóttur og Björn Bergsteinn Guðmundsson hannar lýsingu.
Þrjár forsýningar verða á verkinu í Frumleikhúsinu í Keflavík dagana 2. 3. og 4. september, auk þess sem sérstök hátíðarsýning verður sunnudaginn 5. september, í lok Ljósanætur.
Miðasala á sýningarnar hefst fimmtudaginn 26. ágúst í Frumleikhúsinu. Einnig er hægt að panta miða í síma: 421 2540
Bílakjarninn
Bílakjarninn