HSS
HSS

Fréttir

VL: Óánægja starfsfólks Navy Exchange
Föstudagur 19. maí 2006 kl. 15:01

VL: Óánægja starfsfólks Navy Exchange

Talsverður kurr var í starfsmönnum Varnarliðsins í gær þegar sögusagnir um að Navy Exchange, verslun bandaríska flotans, hafi boðið starfsfólki sínu 3ja mánaða laun aukreitis fyrir að vinna út uppsagnarfrest til 30. september, en Starfsmannahald varnarliðsins hafi komið í veg fyrir slíkt. Um 25 íslenskir starfsmenn vinna hjá Navy Exchange.

Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi VL, sagði hins vegar, í samtali við Víkurfréttir, að ekkert slíkt mál hafi borist inn á borð Starfsmannahalds. Hann bætti því við að þrátt fyrir að einstakar deildir innan Bandaríkjahers hefðu fjármuni til að hækka laun starfmanna sinna umfram það sem um er samið væri slíkt ekki gerlegt án aðkomu kaupskrárnefndar. Það væri því ekki á ábyrgð Starfsmannahalds.

Kaupskrárnefnd, sem er skipuð þremur mönnum undir forræði utanríkisráðuneytis, ákvarðar ráðningarkjör og vinnuskilyrði starfsmanna varnarliðsins og er það á þeirra könnu að samþykkja allar breytingar í þeim málum. Utanríkisráðherra skipar formann nefndarinnar án tilnefningar og aðra nefndarmenn að fenginni tilnefningu Alþýðusambands Íslands og Vinnuveitendasambands Íslands.

Talsvert hefur verið um að starfsfólk hinna ýmsu deilda varnarliðsins hætti störfum áður en til uppsagnar kemur í lok september og eru, samkvæmt heimildum Víkurfrétta, allnokkrar deildir orðnar ansi fáliðaðar vegna uppsagna nú þegar.

VF-mynd/ELG

Bílakjarninn
Bílakjarninn