Vitni óskast - Skemmdir á bifreið
Skemmdir voru unnar á lakki bifreiðarinnar VP-740 miðvikudaginn 5. apríl á tímabilinu 12:15-15:15.Bifreiðin stóð á bifreiðastæði við Sunnubraut á móts við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og er af gerðinni Peugeot 205. Ef einhver hefur orðið vitni að skemmdarverkinu er sá hinn sami vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögregluna í Keflavík.