Vitni að banaslysi gefi sig fram
Lögreglan í Keflavík óskar eftir að komast í samband við unga stúlku sem var ein af fyrstu vegfarendum sem komu að umferðarslysinu skammt utan við Sandgerði á miðvikudagskvöld, þar sem tveir menn létust. Einnig óskar lögreglan eftir að ná tali af fólki sem hugsanlega varð vitni að slysinu eða var komið á vettvang þess áður en lögregla og björgunarlið komu á slysstað.
Fólk getur haft samband við lögregluna í Keflavík í síma 420 2400 eða fengið samband í gegnum Neyðarlínuna í síma 112.
Fólk getur haft samband við lögregluna í Keflavík í síma 420 2400 eða fengið samband í gegnum Neyðarlínuna í síma 112.