Vítisenglum vísað frá?
Ekkert virðist ætla að verða af því að meðlimum vélhjólagengisins Hells Angels, eða Vítisenglum, verði hleypt inn í landið til að sækja veisluhöld hjá vélhjólaklúbbnum Fáfni. Nokkrir meðlimir Fáfnis voru mættir á völlinn í dag til að sækja gesti sína, sem komu með flugi frá Osló, en svo virðist sem löggæsluyfirvöld hafi ákveðið að hleypa mönnunum ekki inn í landið. Viðbúnaður lögreglu var mikill og um 15 lögreglumenn á vaktinni í salnum.
Önnur vél var væntanleg þar sem fleiri vítisenglar áttu að vera, en líklegt má telja að þeim muni einnig verða snúið aftur til síns heima og að Fáfnismenn fagni einir í kvöld.
VF-mynd/Þorgils - Fáfnismenn í komusal FLE innan um almenna farþega og lögregluþjóna.