Vítisenglar sendir heim
Tveir meðlimir vélhjólagengisins Hells Angels voru stöðvaðir á Keflavíkurflugvelli á föstudaginn. Mennirnir tveir voru hingað komnir vegna tveggja ára afmælishátíðar vélhjólagengisins Hells Angels hér á landi, sem fram fór um helgina.
Annar þeirra er verðandi meðlimur Hells Angels í Rúmeníu, en hinn fullgildur meðlimur HA- klúbbs í Noregi. Lögreglan á Suðurnesjum handtók mennina og tók Útlendingastofnun síðan ákvörðun um að frávísa þeim.