Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Vissara að hafa með sér vegabréfið til meginlandsins
Miðvikudagur 20. júlí 2005 kl. 14:54

Vissara að hafa með sér vegabréfið til meginlandsins

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið vekur athygli á því að Frakkar og Ítalir hafa ákveðið að taka upp landamæraeftirlit á innri landamærum aðildarríkja Schengen-samningsins. Ferðamenn sem og aðrir geta því vænst þess að þurfa að sæta vegabréfaeftirliti við komu og brottför frá Frakklandi og Ítalíu. Þá má búast við landamæraeftirliti á öðrum stöðum innan Schengen samstarfsins á komandi vikum. Ástæðan fyrir þessum ráðstöfunum er ótti við hryðjuverk eftir árásina í London fyrr í þessum mánuði.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024