Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Vísbendingar um breytt mynstur í jarðskorpuhreyfingum
Frá vísindaráðsfundi í gær. Mynd af vef Veðurstofu Íslands.
Föstudagur 7. febrúar 2020 kl. 09:33

Vísbendingar um breytt mynstur í jarðskorpuhreyfingum

Vísbendingar eru um breytt mynstur í jarðskorpuhreyfingum, en enn má sjá merki um áframhaldandi landris. Í heildina hefur land risið um 5 cm frá 20. janúar sl. Gervitunglamyndir sýna sömu þróun. Með landrisi má búast við áframhaldandi jarðskjálftavirkni. Enn nokkur óvissa um hvernig virknin muni þróast.

Jarðvísindamenn hittust á vísindaráðsfundi Almannavarna í gær og fóru yfir stöðu mála vegna landriss og jarðskjálftavirkni við fjallið Þorbjörn á Reykjanesskaga. Fundinn sátu vísindamenn frá Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnun Háskólans og ÍSOR, ásamt fulltrúum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, HS-Orku, Umhverfisstofnun og lögreglunni á Suðurnesjum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Rýnt var í þau gögn sem safnast hafa síðustu vikuna, annars vegar frá þeim mælitækjum sem fyrir voru sem og þeim sem sett hafa verið upp að undanförnu. Nýjustu gögn gefa til kynna að kvikan sem um ræðir sé á 3-5km dýpi, en dýpið var áður áætlað 3-9km. Einnig var farið yfir hugsanlega atburðarás sem gæti farið í gang ef til eldsumbrota kæmi.

Vísbendingar eru um breytt mynstur í jarðskorpuhreyfingum. Dregið hefur úr jarðskjálftavirkni undanfarna tvo sólarhringa, en enn má sjá merki um áframhaldandi landris en það er nú orðið 5sm þar sem það er mest. Um er að ræða langtímaatburð og er reynslan af öðrum sambærilegum atburðum sú að breytingar geta orðið í landrisi viku frá viku án þess að hægt sé að fullyrða um að virknin sé að fjara út.

Á næstu dögum verður metið hvort nauðsynlegt sé að fjölga mælitækjum til að fá betri mynd á þróun mála.

Næsti fundur vísindaráðsins verður haldinn eftir viku að öllu óbreyttu.