Vísbendingar um að ný gosop geti opnast
Einungis virðist gjósa á tveimur stöðum á sprungunni norður af Grindavík. Mestur er krafturinn í gosopi rétt sunnan Hagafells. Ekki er hægt að sjá að hraunjaðar sé nokkursstaðar að skríða fram, segir Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands í nýrri færslu á Facebook.
„Þrátt fyrir þetta eru vísbendingar um að ný gosop geti opnast. Áfram mælist gliðnun innanbæjar í Grindavík, mest syðst í bænum samkvæmt Veðurstofunni,“ segir í færslunni.
Þar segir einnig: „Óvenju mikil skjálftavirkni hefur verið frá því að gosið hófst og frá miðnætti hafa mælst yfir 600 skjálftar. Er það mun meiri skjálftavirkni en það sem sást í gosinu fyrir jól, en þá féll skjálftavirknin nær alveg niður eftir að gossprungan náði hámarkslengd sinni. Slík skjálftaþögn er hefðbundin í eldgosum þar sem yfirleitt næst ákveðið jafnvægi í jarðskorpunni þegar eldgos hefst. Því virðist ekki vera að skipta núna. Óvissan er því áfram mjög mikil.“