HSS
HSS

Fréttir

Vísað úr landi
Laugardagur 14. nóvember 2009 kl. 12:54

Vísað úr landi

Samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar vísaði lögreglan á Suðurnesjum í dag tveimur EES borgurum frá landinu. Við ákvörðun Útlendingastofnunar var litið til frávísunarheimilda í ákvæðum 41. gr. útlendingalaga þar sem skírskotað er til allsherjarreglu og almannaöryggis.


Mennirnir komu til landsins að kvöldi þriðjudagsins 10. nóvember frá London Heathrow. Við afskipti lögreglu vaknaði grunur um að þeir væru hingað komnir í ólögmætum tilgangi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Í samvinnu við tollgæslu fannst í fórum mannanna búnaður sem ætlaður er til að svíkja fé af fólki með beitingu blekkinga og fölsun Evruseðla. Sams konar búnaður hefur áður verið tekinn af mönnum sem hingað hafa komið í sama tilgangi.

Mennirnir eru franskir ríkisborgarar.