Fréttir

Vísað úr flugstöðinni vegna ölvunar
Þriðjudagur 19. desember 2017 kl. 11:06

Vísað úr flugstöðinni vegna ölvunar

Mikil ölvun var í Flugstöð Leifs Eiríkssonar um miðnætti í nótt sem varð til þess að níu farþegum var vísað frá flugi  ungverska flugfélagsins Wiss Air til Gdansk vegna ástands þeirra.  Mikill fjöldi lögreglumanna úr flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum voru á svæðinu og gáfu þeir umræddum farþegum fyrirmæli um að yfirgefa bygginguna, sem þeir gerðu. Skömmu síðar barst svo tilkynning um að hópurinn væri mættur aftur í  FLE og væri með læti. Fólkið virðist þó hafa séð sig um hönd því það var nýfarið þegar lögregla mætti.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100