Vírus getur borist úr grindhvalnum í menn
Sýkingarhætta er af grindhvölunum sem strönduðu í fjörunni nærri Útskálakirkju. Ingólfur Einar Sigurjónsson, formaður Björgunarsveitarinnar Ægis í Garði, segir mikilvægt að fólk sem fór niður í fjöruna og komst í snertingu við dýrin viti að vírus geti borist úr dýrunum og í menn.
Ef fólk finni fyrir roða í augum eða klára þá þurfi að leita til bráðamóttöku sjúkrahúsa.
Fjölmargir fóru niður í fjöruna og reyndu að koma hvölum á flot að nýju og þegar leið á kvöldið var orðið talsvert blóðbað í fjörunni eftir slösuð og deyjandi dýr.