Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Virkt landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli afar mikilvægt
Föstudagur 20. október 2017 kl. 14:20

Virkt landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli afar mikilvægt

Lögreglan á Suðurnesjum hefur séð ástæðu til þess að gefa út fréttatilkynningu vegna fyrirspurna varðandi upprætingu skipulagðra glæpasamtaka. Hér að neðan má lesa yfirlýsingu frá lögreglunni.

Vegna framkominna fyrirspurna þykir lögreglunni á Suðurnesjum rétt að eftirfarandi komi fram varðandi upprætingu skipulagðra glæpasamtaka sem grunuð eru um smygl á fólki frá Suður-Evrópu til Bandaríkjanna, með viðkomu m.a. í Finnlandi og á Íslandi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Lögreglan á Suðurnesjum hóf rannsókn þessa tiltekna máls í janúar 2017, eftir að tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar höfðu stöðvað tvo einstaklinga sem kváðust ekki þekkjast þótt sami aðili hefði greitt farmiða þeirra. Við rannsókn málsins kom meðal annars í ljós að annar mannanna ferðaðist á stolnu vegabréfi. Hann var því handtekinn. Lögreglan handtók einnig hinn manninn vegna gruns um aðild hans að því að flytja fólk með ólögmætum hætti yfir landamæri.

Upplýsingum sem fram komu við lögreglurannsóknina var miðlað til erlendra lögregluyfirvalda í gegnum Europol. Þær upplýsingar leiddu til þess að landamæraeftirlitið í Finnlandi upprætti, með stuðningi Europol og bandarískra yfirvalda, skipulögð glæpasamtök sýrlenskra og íraskra borgara. Samtökin eru grunuð um að hafa reynt að smygla fólki frá suður­hluta Evr­ópu til Finn­lands og þaðan til Banda­ríkj­anna í gegn­um Ísland og Mexí­kó. Finnsk yf­ir­völd hafa hand­tekið fjóra liðsmenn í glæpa­samtökunum og fram­kvæmt hús­leitir í fjór­um hús­um í Hels­inki, Vantaa og Tam­p­ere í Finn­landi. Fjöldi farsíma var meðal ann­ars gerður upp­tæk­ur í hús­leit­inni. Jafnframt fundust þúsund­ir evra í reiðufé í plast­pok­um.

Grunur hefur legið á að leiðin um Keflavíkurflugvöll hafi verið og sé nýtt til að smygla fólki m.a. frá Evrópu til Bretlands, Bandaríkjanna og Kanada. Ofangreindar málalyktir renna enn frekari stoðum undir þann grun. Virkt landamæraeftirlit, ekki síst á Keflavíkurflugvelli, er afar mikilvægt, eins og ofangreindar málalyktir staðfesta, og brýnt að efla lögregluna á Suðurnesjum til að sinna því starfi. Jafnframt eru alþjóðlegt samstarfs lögreglu og miðlun upplýsinga lykilatriði þegar stemma skal stigu við skipulagðri glæpastarfsemi sem þessari.