Fréttir

Virknin nánast óbreytt frá því í gær
Mánudagur 13. nóvember 2023 kl. 12:07

Virknin nánast óbreytt frá því í gær

Skjálftavirkni hefur verið stöðug síðan 11. nóvember. Um 900 skjálftar hafa mælst frá miðnætti í dag 13. nóvember. Skjálftavirknin er dreifð um suðurhluta gangsins á milli Sundhnúks og Grindavíkur á um 2-5 km dýpi, segir í tilkynningu Veðurstofu Íslands.

Enn mælist hæg minnkandi aflögun við Grindavík. Gliðnun er mest við miðju gangsins við Sundhnúk þar sem megin uppstreymissvæði kviku er talið vera.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Það er mat Veðurstofunnar að virknin í og við Grindavík sé nánast óbreytt frá því í gær.

Fylgst er gaumgæfilega með öllum mælakerfum í rauntíma, sér í lagi við Grindavík, sem gætu bent til breytinga á stöðunni. Vakt Veðurstofunnar einbeitir sér sérstaklega að svæðinu í og við Grindavík og heldur úti sérstakri vöktun fyrir viðbragðsaðila sem sinna aðgerðum á staðnum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn