Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Virkjun á Vallarheiði tekin til starfa
Fimmtudagur 8. janúar 2009 kl. 09:27

Virkjun á Vallarheiði tekin til starfa




Virkjun mannauðs á Reykjanesi hóf starfsemi sína sl. mánudag. Virkjun er til húsa í byggingu 740 á Vallarheiði en þar er verið að byggja upp starfsemi fyrir íbúa á Reykjanesi sem leitar nýrra tækifæra í atvinnu eða námi.

Við þær aðstæður sem eru í þjóðfélaginu var afráðið að setja á stofn miðstöð, Virkjun þar sem einstaklingar á Suðurnesjum geta leitað nýrra tækifæra en boðið verður upp á náms- og starfsráðgjöf, persónuleg sérfræðiaðstoð lögmanna, félagsráðgjafa, fjármálaaðstoð, framtalsaðstoð og fleira.

Þá verður Virkjun ekki síður samkomustaður fólks sem vill nýta það áfall sem atvinnuleysi er hverjum og einum til að búa sig undir ný tækifæri í atvinnu með námi, námskeiðum eða mannbætandi tómstundum og menningarstarfsemi sem einnig verður í boði í Virkjun.

Keilir, Fjölbrautaskóli Suðurnesja og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman með Virkjun eins og sjá má í auglýsingu í blaðinu í dag og bjóða upp á fjölbreytt nám fyrir þá sem leita nýrra tækifæra. Við hvetjum alla sem vilja skoða þessa möguleika að líta við í Virkjun og kynna sér málin frekar. Laugardaginn 17. janúar verður sameiginleg kynning námstækifæra og starfsemi Virkjunar frá kl. 13:00 – 16:00

Virka daga er Virkjun opin frá kl. 09:00-16:00 og eru allir íbúar á Reykjanesi sem telja sig eiga erindi velkomnir, fá sér kaffi og kynna sér starfsemina, en nám, fyrirlestrar, íþróttaæfingar, listnám og annað sem Virkjun býður verður þátttakendum að kostnaðarlausu. Vinnuaðstaða er fyrir námstengd verkefni, stofnun fyrirtækja og ýmiskonar frumkvöðlastarfsemi í samstarfi við frumkvöðlasetrið Eldey.

Virkjun er rekin með framlagi stofnana, fyrirtækja og einstaklinga sem leggja fram vinnu án endurgjalds og þörf er á fleiri sjálfboðaliðum til starfa til að halda starfseminni úti.

Strætó fer frá Reykjaneshöll á heila tímanum í Virkjun, fyrir þá sem koma akandi er Virkjun við Flugvallarbraut á leið í gömlu flugstöðina.
Þeir sem vilja leggja sitt af mörkum mæti í Virkjun og hafi samband við Páll Rúnar Pálsson, sími 664 2804, Ásu Eyjólfsdóttur í síma 862 5282, eða Ásmund Friðriksson síma 894 3900, sem veita allar upplýsingar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024