Bygg
Bygg

Fréttir

Sunnudagur 20. janúar 2002 kl. 11:48

Virgin-þotan fer í hádeginu

Breska farþegaþotan frá Virgin Atlantic, sem lenti á Keflavíkurflugvelli í gær vegna sprengjuhótunar, fer á hádegi í dag vestur um haf. Leit var lokið í farangri farþega um miðnætti og klukkutíma síðar var lokið við sprengjuleit um borð í flugvélinni. Farþegar vélarinnar gistu á hótelum á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þotan var komin upp að hliði 12 við Leifsstöð snemma í morgun. Um borð í vélinni í gær voru 357 manns, en vélin var á leið frá Gatwick-flugvelli í London til Orlando í Bandaríkjunum, þegar henni var snúið til Keflavíkur vegna sprengjuhótunarinnar.
Bílakjarninn
Bílakjarninn