Vinstri grænir vilja fangelsi á Ásbrú
- og Landhelgisgæsluna til Keflavíkurflugvallar
Félagsfundur VG á Suðurnesjum, haldinn á kaffi Duus fimmtudaginn 14. október sl., fagnar nýtilkomnum vaxtarsamningi þar sem ríkið leggur fram fé til að efla samvinnu fyrirtækja á Suðurnesjum um að þróa ný atvinnutækifæri. Fundurinn hvetur atvinnurekendur á Suðurnesjum til að taka höndum saman um að efla atvinnulífið hér.
Fundurinn skorar á stjórnvöld að taka þegar í stað ákvörðun um að flytja hingað til Suðurnesja Landhelgisgæsluna og starfsemi henni tengda, þar sem húsnæði bíður nánast tilbúið. Jafnframt að horft verði til Suðurnesja með uppskipunar- og útskipunarhöfn vegna strandsiglinga. Einnig verði skoðað húsnæði á Ásbrú fyrir nýtt fangelsi enda hljóti að sparast fé verði sú leið valin, segir í ályktun fundarins.