Vinstri græn stilla upp í Suðurkjördæmi
Vinstri grænir ákváðu á aðalfundi kjördæmaráðs á Selfossi þann 7. maí síðastliðinn að stilla upp á lista sinn í Suðurkjördæmi fyrir næstu Alþingiskosningar. Í tilkynningu frá Vinstri grænum segir að mikill hugur hafi verið í fundarmönnum og ljóst að fólk sé tilbúið að vinna af alefli að framgangi flokksins í komandi kosningabaráttu í Suðurkjördæmi.
Ákveðið var að gefa því fólki sem gengið hefur til liðs við hreyfinguna eða vill gera það, tækifæri til að gefa sig fram, vilji það taka sæti á lista fyrir kosningarnar. Einnig er mögulegt að senda inn ábendingar og tilnefningar um fólk sem vill taka sæti á lista Vinstri grænna fyrir næstu kosningar.