„Vinsamlegast skilið stubbahúsinu!“
Stolið frá Rauða krossinum.
Fulltrúi Rauða krossins á Suðurnesjum var miður sín þegar hann hafði samband við Víkurfréttir og tilkynnti að stóru stubbahúsi hefði verið stolið frá þeim. Honum fannst frekar bagalegt að einhverjum skyldi detta í hug að stela frá Rauða krossinum. Stubbahúsið stóð fyrir utan húsnæðið og er það mikið notað af skjólstæðingum þeirra. Vilja þau gjarnan hafa aðkomu að húsnæðinu snyrtilega.
Starfsfólk Rauða krossins á Suðurnesjum beinir þeim tilmælum til þess/þeirra sem tók/u stubbahúsið að vinsamlegast skila því aftur á sinn stað.